Þeir sem "meika það"

bigpicHvernig á að "meika það" á Íslandi:

1. Gangtu í rétta flokkinn.  Framsókn og Sjálfsstæðisflokkurinn eru besti.

2. Vertu fyndinn.  Hæfileikar skipta engu máli, en ef þú getur fengið karlakór á Þorrablóti til að hlæja, þá er framtíð þinni borgið.

3. Hugsaðu stórt.  Ekki taka 15 milljóna lán fyrir íbúð.  Taktu 200 milljóna lán og eyddu í flottan lífsstíl og hlutabréfakaup.  Ekki gleyma að setja nokkrar millur í flokkinn þinn.

4. Vertu vinur rétta fólksins.  Þeir ráða þig í flott starf með feitum launum og stjarnfræðilegum starfslokasamningum.  Þú ræður þau á móti í starf með feitum launum og stjarnfræðilegum starfslokasamningum.

5.  Fáðu vin þinn til að kaupa verðlaust fyrirtæki á 1 milljón og selja þér á 50 milljónir.  Þú selur honum helminginn af fyrirtækinu aftur á 75 milljónir og hinn helmingurinn fer á hlutafjármarkað þar sem þú selur hinn helminginn á aðrar 75 milljónir.  Heldur síðan áfram að selja og kaupa sama fyrirtækið.  Tekur lán út á hlut þinn í því (sjá númer 3.)

6. Komdu þér á þing og síðan í ríkisstjórn.  Fullt af áhrifum, peningum, utanlandsferðum og veislum.  Engin þörf á þekkingu og reynslu, og engin ábyrgð.

7. Fluttu alla peningana til útlanda en skildu eftir skuldirnar í Íslenskum fyrirtækjum.  Sérstaklega erlendu skuldirnar.

8. Láttu líta út fyrir að þú sért ómissandi.  Fáðu starf eða embætti með engar hæfniskröfur í gegnum flokkinn, og láttu flokksfélagana segja að þú getir ekki misst starfið það sem þú ert sá eini sem kannt það.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband