Einangrunarstefna Flokksins

Einn grundvöllur yfirtöku ríkisins á Íslensku bönkunum er að þeir skeri á alla viðskiptastarfsemi erlendis.  Þetta er stefna sem sprottin er úr skoðunum lítils arms Sjálfsstæðisflokksins.  Þessi armur er sá hópur sem stendur t.d. á móti inngöngu Íslands í ESB og er um leið venjulega últra frjálslyndur, á móti ríkisafskiptum.

Í hita leiksins virðast fáir geta litið á þetta með köldu höfði og langtímasjónarmiði.  Hve heillavænlegt er það að snúa alþjóðavæðingunni við og setja á bankalega einangrunarstefnu?

Mestu viðskipti Íslensku bankana eru erlendis, enda er Íslenski bankamarkaðurinn mjög lítill.  Þetta hefur vissulega góðar og slæmar hliðar.  Ein sú versta er þegar áhættufjárfestar taka lán í öðrum löndum á lágum kjörum og setja í Íslenska bankareikninga á ofurvöxtum, sem haldið er uppi af Seðlabankanum.  En það er ekki allt slæmt í þessari alþjóðavæðingu.  Þetta gefur Íslenskur fyrirtækjum einnig auðveldari leið á erlenda markaði, og hér á það við um bæði þjónustu og framleiðslufyrirtæki.  Einangrunarstefnan sem sett hefur verið fram mun gera að engu alla þá vinnu sem farið hefur verið í við útrás bankana, og eyðileggur alla möguleika á þessu í framtíðinni.

Það sem verður að hafa í huga þessa dagana er að þetta er skammtíma vandi.  Bankastarfsemi mun taka við sér aftur og efnahagurinn snúast við.  Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem kreppa hefur skollið á, og ekki í fyrsta skiptið sem ríkið hefur þurft að grípa inní markaðinn.

Á áttunda áratugnum gripu Bandarísk stjórnvöld inní fjármálakerfið sem hrundi með fjárfestingum í hlutabréfum.  Þessi hlutabréf seldu stjórnvöld seinna með miklum hagnaði þegar markaðurinn tók við sér aftur.  Með einangrunarstefnu sinni hafa Íslensk stjórnvöld í raun komið í veg fyrir að ríkið geti hagnast á þessu ástandi til langs tíma litið.  Ólíkt öðrum ríkjum munu Íslendingar þurfa að standa undir ofurskuldum í framtíðinni án nokkurra möguleika á að koma sér út úr vandanum.  Allt út af óupplýstrar sjálfsstæðishugmynda fárra einstaklinga innan Sjálfsstæðisflokksins.  Manna sem sköpuðu vandamálið upphaflega.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband