Reykjavíkurborg sturtar 2000 milljónum í klósettið

Mér finnst sjálfum leiðinlegt þegar einhver bendir á mig og segir "ég sagði þér það!".  En í þessu ástandi í dag þá langar mig að spyrja kæra Reykvíkinga hvað þeim finnist núna um það að

Ólafur F Magnússon fyrrverandi borgarstjóri keypti tvo skúra á Laugarveginum fyrir 580 milljónir króna.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson fyrrverandi borgarstjóri keypti brunarústir við Lækjatorg fyrir ca. 500 milljónir króna.

Kostnaðurinn við að endurbyggja þessar eignir í "upprunalegri mynd" verða líklega um 1000 milljónir króna.

Allt vegna þess að þessum mönnum finnst timbur og bárujárn fallegra en stein eða steinsteypa.  2000 milljónir fyrir smekk tveggja manna.

Jú að vísu stóð Sjálfsstæðisflokkurinn í borginni, og Framsókn, fyrir aftan þessi kaup líka.

Það væri gott að hafa 2000 milljónir í kassa borgarinnar í dag ekki satt?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband